Húsfélagið Strikið 2-12
Reglur fyrir salinn okkar voru samþykktar á aðalfundi húsfélagsins þann 27. febrúar 2014.
Reglur fyrir sal húsfélagsins – Strikið 2-12
Í umboði hússtjórnar sér húsvörður um að leigja út salinn til þeirra sem þess óska.
Íbúar njóta forgangs á leigu salarins þannig að þeir geta bókað salinn langt fram í tímann en utanaðkomandi geta einungis bókað salinn einn mánuð fram í tímann.
Salurinn er alltaf leigður heilan dag þ.e. frá kl. 08:00 til 24:00 en frá kl. 23:00 má ekkert það fara fram í salnum eða í nágrenni hans sem raskað getur ró íbúa hússins. Ávallt skal hafa í huga að salurinn er í næsta nágrenni við íbúa hússins.
Ölvun og ólæti eru bönnuð.
Leigutaki er ábyrgur fyrir skemmdum sem kunna að verða á salnum og innbúi hans.
Búnaður til veisluhalda er fyrir 50-60 manns. Athugið að engin tengsl eru við stóra salinn í Jónshúsi og því ekki heimilt að fara með dót þangað inn né að fá þar borð og stóla.
Salurinn er leigður með þeim búnaði sem þar er og ekki er heimilt að fjarlægja né bæta við búnaði í salinn. Leigjendum er ráðlagt að kynna sér fyrirfram þann búnað sem fyrir hendi er.
Óheimilt er að nota salinn til matagerðar og á það sérstaklega við um steikingu á laufabrauði og sláturgerð eða annað sem veldur þrálátri lyktarmengun.
Eldavélahellurnar eru eingöngu ætlaðar til hitunar á forgerðum réttum.
Skila skal salnum og búnaði hans í því ástandi sem leigutaki tók við honum þ.e.:
Þurrka af borðum og raða þeim upp
Raða öllum stólum upp í grindurnar
Þvo allan borðbúnað og setja í rétta skápa og skúffur
Ganga vel frá eldhúsinu
Sópa allt rusl af gólfinu
Munum að salurinn er okkar sameign og því okkar hagur að umgengni sé góð.
Hússtjón.